Fotbolti.net
26.01.09 - 15:26
Magnús Már Einarsson

Pascal Chimbonda til Tottenham (Staðfest)

Pascal Chimbonda til Tottenham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Tottenham hefur keypt varnarmanninn Pascal Chimbonda frá Sunderland en Harry Redknapp knattspyrnustjóri félagsins staðfesti þetta í dag.
Chimbonda yfirgaf Tottenham síðastliðið sumar og gekk í raðir Sunderland en nú er hann kominn aftur til Spurs.

Chimbonda byrjaði ágætlega hjá Sunderland en missti síðan sæti sínu í liðinu. Hann kom alls við sögu í sextán leikjum á stuttum ferli sínum hjá félaginu.

Áður var Chimbonda á mála hjá Wigan en félagið keypti hann frá Bastia í Frakklandi á sínum tíma.

Tottenham er að vinna í því að styrkja leikmannahópinn þessa dagana en fyrr í dag kom markvörðurinn Carlo Cudicini til félagsins frá Chelsea.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.