26.01.09 - 15:30
Magnús Már Einarsson
Hugo Rodallega til Wigan (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Wigan Athletic hefur gengið frá kaupum á kolumbíska framherjanum Hugo Rodallega.
Rodallega hefur gert þriggja og hálfs árs samning við Wigan eftir að hafa staðiðst læknisskoðun og fengið atvinnuleyfi á Englandi.
Steve Bruce stjóri Wigan er ánægður með að hafa krækt í þennan 23 ára gamla leikmann til að fylla skarð Emile Heksey sem fór til Aston Villa fyrir helgi.
,,Það hefur tekið tíma að klára alla pappírsvinnuna í þessum flóknu félagaskiptum en ég er ánægður með að þetta er allt klárt,\" sagði Bruce.
Forráðamenn Wigan vonast til að Rodallega geti leikið sinn fyrsta leik á miðvikudaginn þegar að Liverpool kemur í heimsókn.

Heimild: Sky