26.01.09 - 17:00
Hafliði Breiðfjörð
Brett Maron markvörður Aftureldingar til Kristianstad (Staðfest)

Brett Maron.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Brett Maron.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Brett Maron markvörður Aftureldingar er gengin í raðir sænska félagsins Kristianstad sem Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar. Maron sem er 23 ára gömul bandarísk stúlka var af mörgum talinn besti markvörður Landsbankadeildarinnar í sumar.
Hún hafði gengið til liðs við Aftureldingu fyrir síðustu leiktíð og vakti strax mikla athygli fyrir góða frammistöðu sína. Hún lék í heildina 17 leiki með Aftureldingu í Landsbankadeildinni auk tveggja leikja í VISA-bikarnum.
Hún kemur frá Massachusetts í Bandaríkjunum þar sem hún spilaði með Stars of Massachusetts sem vann Bandaríkjamót U19 ára liða og sjálf vann hún gullna hanskann árið 2005.
Félög hér á landi höfðu sýnt henni áhuga en hún valdi að fara til Svíþjóðar og spila með Kristianstad.
Hjá Kristianstad eru þrír íslenskir leikmenn. Erla Steina Arnardóttir, Hólmfríður Magnúsdóttir og Guðný Björk Óðinsdóttir auk þess sem Elísabet Gunnarsdóttir er þjálfari.

Heimild: Damfotboll