26.01.09 - 18:01
Magnús Már Einarsson
Mark Davies til Bolton (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Bolton Wanderers hefur keypt miðjumanninn Mark Davies frá Wolves en kaupverðið hefur ekki verið uppgefið.
Þessi tvítugi leikmaður óskaði eftir sölu frá Wolves í síðustu viku og nú hefur hann skrifað undir fjögurra og hálfs árs samning við Bolton.
Davies lék sinn fyrsta aðalliðsleik í ágúst árið 2005 en náði hins vegar ekki að vinna sér sæti í liðinu fyrir þessa leiktíð.
Í kjölfarið fór hann á láni til Leicester þar sem hann hefur leikið undanfarna mánuði.

Heimild: BBC