Fotbolti.net
26.01.10 - 08:20
Magnús Már Einarsson

Fannar Freyr Gíslason til ÍA (Staðfest)

Fannar Freyr Gíslason til ÍA (Staðfest)
Canon

Mynd: Heimasíða ÍA

ÍA hefur fengið framherjann Fannar Freyr Gíslason til liðs við sig frá Tindastól.
Þessi 18 ára gamli leikmaður hefur leikið æfingaleiki með ÍA að undanförnu og skorað í þeim þrjú mörk.

Hann er núna búinn að skrifa undir þriggja ára samning við Skagamenn.

Fannar Freyr hefur leikið með meistaraflokki Tindastóls undanfarin tvö ár en síðastliðið sumar skoraði hann eitt mark í þrettán leikjum í annarri deildinni.

Þess má geta að Gísli SIgurðsson faðir Fannars Freys lék með ÍA árið 1990 en hann varði þá mark liðsins.

Heimild: Heimasíða ÍA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.