Fotbolti.net
26.01.10 - 16:16
Magnús Már Einarsson

Chris Smalling til Manchester United (Staðfest)

Chris Smalling til Manchester United (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United hefur keypt varnarmanninn Chris Smalling frá Fulham.
Þessi tvítugi leikmaður mun klára tímabilið með Fulham og ganga síðan í raðir Manchester United í sumar.

Smalling var einnig á óskalista Arsenal en talið er að Manchester United hafi haft betur í baráttunni með því að borga sjö milljónir punda fyrir leikmanninn.

Smalling kom til Fulham frá utandeildarliðinu Maidstone árið 2008.

Hans fyrsti leikur í byrjunarliði með Fulham var gegn Chelsea í lok desember á síðasta ári og síðan þá hefur hann komið við sögu í nokkrum leikjum.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.