26.01.10 - 18:19
Hörður Snævar Jónsson
Craig Gardner til Birmingham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Birmingham hefur gengið frá kaupunum á Craig Gardner frá grönnum sínum í Aston Villa fyrir 3 milljónir punda.
Gardner sem er 23 ára gamall miðjumaður skrifaði undir fjögurra og hálfs árs samning við Birmingham.
Hann hefur ekki fengið mörg tækifæri á Villa Park en hann hefur aðeins komið við sögu í þremur leikjum liðsins á tímabilinu þar af aðeins einn í deildinni.
,,Ég er alveg himinlifandi, sérstaklega þar sem þetta er félagið sem ég studdi í æsku,\" sagði Gardner.
Birmingham sem eru nýliðar í deildinni hafa gert frábæra hluti í ár undir handsleiðslu hins skoska, Alex McLeish.

Heimild: BBC