Fotbolti.net
26.01.24 - 15:32
Elvar Geir Magnússon
- Kloppvaktin

Svona var fréttamannafundur Klopp

Svona var fréttamannafundur Klopp
Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool verður með fréttamannafund á æfingasvæði félagsins klukkan 15:00 þar sem Jurgen Klopp mun sitja fyrir svörum eftir að tilkynnt var í morgun að hann hefði ákveðið að láta af störfum sem stjóri félagsins. Auk Klopp mun Billy Hogan, framkvæmdastjóri félagsins, tjá sig.

Hægt er að horfa á fréttamannafundinn í beinni hér að neðan ásamt því að það helsta sem þar kemur fram birtist í beinni textalýsingu
Klopp hættir með Liverpool eftir tímabilið (Staðfest)
TENGT EFNI

Klopp hættir með Liverpool eftir tímabilið (Staðfest)

Í beinni

15:41Klopp er farinn og fréttamannafundinum er lokið
Og þessari textalýsingu líka. Takk fyrir samfylgdina. Fréttir varðandi stjóramál Liverpool halda áfram að koma inn á Fótbolta.net og ég minni á hlaðvarpsþáttinn sem er kominn í upptöku.

Eigið gott bóndadagskvöld!
15:36Klopp um Pep Lijnders aðstoðarmann sinn:
„Ég tek mér hlé en aðrir í teyminu eru klárir í að taka ný verkefni. Áhrifin sem Pep hafði síðustu ár eru gríðarleg. Ég er honum þakklátur. Hann gaf mér nýja sýn yfir síðustu ár." segir Klopp en Lijnders ætlar að feta sína eigin braut sem knattspyrnustjóri.
15:32Er starfið meira þreytandi en hann bjóst við?
„Það er ekki þreytandi. Það er krefjandi. Ég vissi ekki við hverju var að búast. Ég vissi hversu stórt félagið væri, þetta er besta félag heims, það er framúrskandi. Að vera heiðurs 'Scouser' er eitthvað það besta sem ég hef afrekað í lífinu."
15:30Hvað vill Klopp segja við hinn almenna stuðningsmann Liverpool?
„Ég vona að þú getir samþykkt þessa ákvörðun. Ég er ekki í stuði til að þakka eitthvað fyrir núna, það kemur að því síðar. Nú snýst þetta um það sem eftir er af tímabilinu. Við vitum að utanaðkomandi vilja að þetta hafi truflandi áhrif. En þetta snýst um okkur sjálfa, allt er uppi á borðum."
15:28Framkvæmdastjórinn Billy Hogan um stjóraleitina:
„Ég vil ekki skapa væntingar varðandi ráðningu á nýjum stjóra. Við vinnum þannig sem félag að allt er skoðað ofan í kjölinn, allar upplýsingar og gögn. Ég set ekki tímalínu á það. Þetta er vinna sem fer fram bak við tjöldin."
15:26Er eitthvað sem getur fengið hann til að skipta um skoðun?
„Nei, ekkert. Þrátt fyrir að við vinnum allt á þessu tímabili þá mun ég ekki skipta um skoðun."
15:24Tekur ekki við öðru ensku liði, sama þó hann muni ekki eiga efni á mat
„Ég hef aldrei lifað eðlilegu lífi, það er þannig. Það dugði að fá þrjár eða fjórar vikur í frí yfir sumartímann en það er ekki þannig lengur. Ég mun ekki taka við neinu liði og engu landsliði næsta árið. Ég mun aldrei stýra öðru ensku liði. Ég get lofað því. Jafnvel þó ég muni ekki eiga efni á mat mun það ekki gerast."
15:22Hélt að hann hefði orku til að halda áfram til 2026
„Ég er sá sem ég er og ég er á þessum stað vegna þess hvernig ég er. Ef ég tel mig ekki geta gert þetta lengur þá segi ég fólki að ég muni hætta. Þegar ég skrifaði undir samninginn var ég 100% viss um að ég gæti haldið áfram til 2026. Ég ofmat orkustigið mitt, hélt að það væri endalaust. Það var þannig en er ekki lengur," segir Klopp.
15:18Framkvæmdastjórinn Billy Hogan:
„Það er erfitt að koma því í orð hvað þetta er stór frétt. Þegar Jurgen kom hingað talaði hann um að yfirgefa félagið á betri stað en þegar hann kom. Það er enginn vafi að hann hefur gert það. Þetta eru leiðinlegar fréttir og ég er viss um að margir stuðningsmenn eru sammála því. Ég hef unnið með honum í níu ár og ég veit að hann telur sig þurfa að taka þessa ákvörðun. Þegar félagi þinn og vinur tekur svona ákvörðun verður þú að virða hana."
15:15Mun hann ráðleggja stjórninni varðandi hver eigi að vera eftirmaður hans?
„Af hverju ætti ég að gera það? Í þessum fótboltaheimi er fullt af fólki sem er að gera frábæra hluti en er ekki alltaf í sviðsljósinu. Það lítur út eins og ég vinn alla vinnuna en það er ekki hægt. Við höfum búið til frábæra yfirbyggingu bak við tjöldin. Svo margir vinna hér við það að gera það besta fyrir Liverpool. Félagið verður að vinna það starf að finna nýjan stjóra á meðan við erum enn til staðar."
15:12Svarar ekki fleiri spurningum um ákvörðunina þegar þessum fundi er lokið
„Eftir daginn í dag mun ég ekki svara fleiri spurningum um þetta mál þar til eftir tímabilið. Ég sagði nokkrum aðilum frá þessu fyrir viku síðan og það voru nokkur tár. Það er eðlilegt eftir að við höfum verið svona lengi saman. Ég ræddi við leikmennina saman og svo nokkra undir fjögur augu eftir það. Leikmennirnir höfðu ekki margar spurningar, okkar samband er sterkt, við erum atvinnumenn. Við erum í þessum saman til að klára þetta tímabil og andinn í hópnum er góður."
15:08Áttaði sig á að auðlindir sínar séu ekki endalausar
„Ég hef verið stjóri í 24 ár núna og þegar þú átt feril eins og minn þá gefur þú allt sem þú átt í starfið. Ég áttaði mig á því að auðlindir mínar eru ekki endalausar. Ég ákvað að gefa allt sem ég á í þetta tímabil. Ég er ekki ungur lengur og get ekki stokkið eins hátt og ég gat."
15:06Telur sig vera að taka rétta ákvörðun
„Maður áttar sig á því að maður er ekki ung kanína lengur og hoppar ekki eins hátt og maður gerði. Ég hugsaði ekki um það viljandi, þetta gerðist bara. Þetta félag, sérstaklega með liðinu sem við erum með, þarf stjóra á hæsta stig. Þegar ég get ekki verið þar lengur verð ég að vera hreinskilinn með það. Ég sagði félaginu ákvörðunina og þjálfurum mínum ákvörðunina. Ég tel að þetta sé rétt ákvörðun."
15:03Fréttamannafundurinn kominn á fulla ferð
Klopp lét ekkert bíða eftir sér og fundurinn hófst á slaginu þrjú.
14:52Klopp stýrði æfingu í dag
Mynd: Getty Images
14:50Fréttamannafundurinn er handan við hornið
Bendi á að fundurinn hefst klukkan 15:00 og er sýndur í spilaranum hér að ofan. Auk Jurgen Klopp mun Billy Hogan, framkvæmdastjóri Liverpool, tjá sig á fundinum.
14:46Aukaþáttur af hlaðvarpsþættinum Enski boltinn kemur inn seinna í dag
Mynd: Fótbolti.net - Tom

Kristján Atli Ragnarsson, stuðningsmaður Liverpool og sérfræðingur útvarpsþáttarins Fótbolti.net, ræðir við Guðmund Aðalstein og Sæbjörn Steinke um stórfréttir dagsins. Farið verður í upptöku um leið og fréttamannafundinum hjá Klopp lýkur.
14:42Áhugavert myndband frá því þegar Bill Shankly hætti með Liverpool


Fyrir tíma internetsins. Örugglega ekki ósvipuð viðbrögð hjá stuðningsmönnum Liverpool í dag.
14:38Tekur Klopp við þýska landsliðinu?
Það eru strax farnar að heyrast háværar sögur um að næsta skref hjá Klopp verði að taka við þýska landsliðinu og stýra því á HM 2026. Hann muni taka sér frí eftir tímabilið og svo muni hann taka við Þýskalandi.

Bild segir frá því að það sé draumur þýska knattspyrnusambandsins að ráða Klopp. Það væri rólegra starf fyrir hann en samt sem áður áhugavert. Julian Nagelsmann er núverandi stjóri Þýskalands og mun stýra liðinu á EM næsta sumar en hann er ekki með mikið traust eins og er.

Klopp hefur sjálfur lýst því yfir áður að það yrði mikill heiður að verða landsliðsþjálfari þjóðar sinnar einn daginn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
14:34Samanburðurinn við Shankly
Mynd: Getty Images

Stuðningsmenn Liverpool voru líka slegnir þegar tilkynnt var 1974 að goðsögnin Bill Shankly væri að yfirgefa félagið. Það er stytta af Shankly fyrir utan Kop enda Anfield og undir hana stendur áletrunin "Hann gerði fólk ánægt" - Það kemur ekki á óvert ef Klopp fær sína styttu fyrir utan Anfield einn daginn.
14:28Klopp á hug og hjörtu margra
Mynd: EPA

Mynd: EPA

14:24Það er skoðanakönnun í gangi á forsíðu - Öll vötn renna til Alonso
14:20Tölurnar talar sínu máli og Klopp er uppi meðal þeirra bestu
Mynd: BBC
14:17Einn besti þjálfari og leiðtogi sem við höfum séð
14:16Myndband sem fær Liverpool stuðningsmenn til að tárast
14:11Alonso segist ekki geta útilokað að taka við Liverpool
Mynd: EPA

Xabi Alonso er sá sem er talinn líklegastur til að taka við Liverpool af Jurgen Klopp eftir tímabilið.

„Sögusagnir eru eðlilegar," sagði Alonso á fréttamannafundi Leverkusen í dag. „En einbeiting mín er á Bayer Leverkusen."

„Ég er mjög ánægður hjá Leverkusen. Auðvitað komu fréttirnar mér á óvart. Ég ber gríðarlega mikla virðingu fyrir Jurgen Klopp."


Getur hann útilokað að hann muni taka við Liverpool fyrir næsta tímabil?

„Í hreinskilni sagt, þá er ég ekki með svar við því. Ég er mjög ánægður hérna núna og ég er bara að hugsa um Leverkusen."
14:10Carragher: Hélt að það væru nokkur ár í þetta
14:07Alonso líklegastur til að taka við
Betfair hefur sett saman stuðla og er þar lægsti stuðullinn á Alonso sem er að gera frábæra hluti með Bayer Leverkusen í Þýskalandi. Hann er með liðið fyrir ofan Bayern München á toppi deildarinnar. Alonso spilaði með Liverpool frá 2004 til 2009 við góðan orðstír.

Líklegastir til að taka við af Klopp:
1. Xabi Alonso
2. Pep Lijnders
3. Roberto De Zerbi
4. Steven Gerrard
5. Julian Nagelsmann
6. Ange Postecoglou
7. Diego Simeone
8. Antonio Conte
9. Luis Enrique
10. Graham Potter

   26.01.2024 11:16
Þessir eru líklegastir til að taka við Liverpool
14:05Klopp að verða orkulaus
„Ég get skilið að á þessu augnabliki er þetta sjokk fyrir marga. Ég get augljóslega útskýrt þetta, eða reynt að gera það," sagði Klopp þegar ákvörðunin var tilkynnt í morgun:

„Ég gjörsamlega elska allt við þetta félag og allt við borgina. En ég tek ákvörðunina þrátt fyrir það og það sýnir ykkur að ég er sannfærður um að hún sé sú rétta."

„Ég er að verða orkulaus. Ég er góður núna en ég finn það að ég get ekki sinnt þessu starfi aftur og aftur, og aftur og aftur. Eftir öll árin sem við höfum varið saman og eftir allt sem við höfum gengið í gegnum saman, þá óx virðingin og ástin. Ég skulda ykkur sannleikann og þetta er sannleikurinn."


   26.01.2024 11:08
Klopp útskýrir ákvörðunina - „Ég er að verða orkulaus"
14:03Formaður Kennarasambands Íslands leggur til að bóndadagurinn verði lagður niður
14:00Góðan bóndadag!
Liverpool varpaði heldur betur sprengju í morgun þegar tilkynnt var að Jurgen Klopp hefði ákveðið að láta af störfum sem stjóri liðsins. Margir stuðningsmenn Liverpool eru hreinlega í sárum.

Við ætlum að fylgjast með fréttamannafundi Klopp sem hefst klukkan 15:00 í beinni textalýsingu en einnig er hægt að nálgast útsendingu hér að ofan.

Mynd: EPA
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.