Ólíklegt að Liverpool selji Robertson - City með augu á Trent Alexander-Arnold - Bobb frá City til Fulham
   mán 26. janúar 2026 10:48
Elvar Geir Magnússon
Kristall æfir með Brann á Spáni - Keyptur á 200 milljónir
Kristall Máni Ingason.
Kristall Máni Ingason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristall Máni Ingason er kominn til móts við Brann á Marbella á Spáni og norskir fjölmiðlar birta myndir af honum þar sem hann er farinn að æfa með liðinu.

Brann er í æfingabúðum á Spáni að búa sig undir lokaumferðina í deildarkeppni Evrópudeildinni þar sem liðið er í baráttu um að komast áfram.

Sagt er að allt sé frágengið, aðeins eigi eftir að ganga frá formsatriðum og kynna hann formlega sem leikmann liðsins. Sagt er að kaupverðið sé um 16 milljónir norskra króna (202 milljónir íslenskra króna) og Íslendingurinn skrifi undir þriggja ára samning.

Kristall verður þriðji Íslendingurinn í leikmannahópi félagsins en þar fyrir eru Eggert Aron Guðmundsson og Sævar Atli Magnússon. Freyr Alexandersson er auðvitað þjálfari liðsins.

Kristall er 24 ára gamall og hefur verið meða allra bestu leikmanna danska félagsins Sönderjyske á tímabilinu. Hann er markahæsti leikmaður liðsins og hefur vakið áhuga félaga úr efstu deildum í Belgíu, Hollandi og Þýskalandi.


Athugasemdir
banner
banner