26.02.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Ágúst Þór Ágústsson í Hvöt (Staðfest)

Ágúst í leik með Fjölni sumarið 2006.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ágúst í leik með Fjölni sumarið 2006.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hvöt hefur klófest miðjumanninn Ágúst Þór Ágústsson á láni frá Breiðablik og verður hann með liðinu í annarri deildinni í sumar.
Ágúst Þór, sem er 23 ára gamall, er uppalinn hjá Blikum og hefur leikið með liðinu mest allan sinn feril.
Hann var í láni hjá Fjölni sumarið 2006 og gekk síðan aftur til liðs við Breiðablik.
,,Um leið og Stjáni (Kristján Óli Sigurðsson, þjálfari Hvatar) setti sig í samband við mig fannst mér þetta vera tækifæri sem erfitt var að hafna. Ég þekki vel til hans og ég held það verði bjart yfir Blönduósi í sumar," sagði Ágúst Þór við Fótbolta.net í gærkvöldi.
Ágúst er í skóla erlendis en mun koma til Íslands í maí og leika með Hvöt.