Fotbolti.net
26.02.08 - 18:30
Hafliði Breiðfjörð

Halldór Kristinn Halldórsson í FH (Staðfest)

Halldór Kristinn í leik með Leikni í 1. deildinni síðastliðið sumar.

Halldór Kristinn í leik með Leikni í 1. deildinni síðastliðið sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Varnarmaðurinn efnilegi Halldór Kristinn Halldórsson er genginn í raðir FH á láni frá 1. deildarliði Leiknis út tímabilið. Þetta staðfesti Lúðvík Arnarson varaformaður knattspyrnudeildar FH í samtali við Fótbolta.net í dag.
Halldór Kristinn verður tvítugur í apríl en hefur þrátt fyrir það leikið með meistaraflokki í fimm ár og vakið mikla athygli út fyrir landssteinana auk þess sem hann hefur verið eftirsóttur af Landsbankadeildarliðum en alltaf valið að vera áfram í Leikni. Hann var fyrirliði Leiknis síðasta sumar og hluta af sumrinu 2006.

Hann hefur allan sinn feril leikið með Leikni og lék sinn fyrsta leik með liðinu í 3. deildinni sumarið 2003 er hann lék fjóra leiki með liðinu. Frá 2004 hefur hann átt fast sæti í liðinu og hann lék 21 leik í 1. deildinni á síðustu leiktíð og skoraði eitt mark. Hann á að baki 70 leiki með meistaraflokki Leiknis í deild og bikar.

Hann hefur einnig átt sæti í U19 ára landsliði Íslands og hefur leikið 9 leiki með liðinu á árunum 2005-2007 en áður hafði hann leikið með U17 ára liðinu.

Halldór hefur verið æft með fjölda stórliða í Evrópu á reynslu eins og Hearts í Skotlandi, Bröndby í Danmörku og AZ Alkmaar í Hollandi.

Hjá FH er Halldóri ætlað það verkefni að leysa stöðu Sverris Garðarssonar sem gekk í raðir Sundsvall í Svíþjóð á dögunum.

Halldór er annar leikmaðurinn sem gengur í raðir FH fyrir komandi tímabil sem bar fyrirliðaband á því síðasta. Hinn var Höskuldur Eiríksson sem kom frá Víkingi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.