26.03.10 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Franck Queudrue til Colchester á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Colchester, sem leikur í þriðju efstu deild á Englandi, hefur fengið vinstri bakvörðinn Franck Queudrue á láni frá Birmingham út þetta tímabil.
Þessi 31 árs bakvörður hefur lítið fengið að spila með Birmingham í vetur en hann hefur verið á eftir Liam Ridgewell og Gregory Vignal í goggunarröðinni.
Colchester er að berjast um að komast upp í Championship deildinni en Queudrue kemur væntanlega beint inn í leikmannahóp liðsins fyrir leikinn gegn Wycombe á laugardag.
,,Það höfðu önnur félög áhuga á mér en þau voru um miðja deild þannig að ég er ánægður með að ganga til liðs við félag sem er í baráttu um að komast upp,\" sagði Queudrue.

Heimild: Sporting Life