Fotbolti.net
26.03.10 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Andri Björn og Brynjólfur Bjarnason til ÍH (Staðfest)

Brynjólfur Bjarnason.

Brynjólfur Bjarnason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍH hefur fengið framherjana Andra Björn Sigurðsson og Brynjólf Bjarnason til liðs við sig.
Brynjólfur kemur frá Gróttu en þessi reyndi leikmaður hefur einnig leikið með ÍR, Aftureldingu og Selfossi á ferlinum.

Í fyrra skoraði Brynjólfur fjögur mörk í fjórtán leikjum þegar að Grótta sigraði aðra deildina.

Andri Björn, sem er tvítugur, kemur til ÍH á láni frá ÍR þar sem að hann er uppalinn.

Í fyrra lék Andri fimm leiki með ÍR í fyrstu deildinni en hann var á láni hjá Aftureldingu síðari hluta tímabils þar sem að hann lék tvo leiki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.