Fotbolti.net
26.03.10 - 12:16
Magnús Már Einarsson

Vigfús Arnar Jósepsson í Leikni R. (Staðfest)

Vigfús Arnar Jósepsson í Leikni R. (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Vigfús Arnar Jósepsson hefur gengið til liðs við Leikni R. en hann kemur til félagsins frá Fjölni.
Vigfús Arnar er sem stendur í námi í Svíþjóð en hann kemur til Íslands um mánaðarmótin maí/júní og mun því missa af fyrstu leikjum Leiknis í sumar.

Þessi 25 ára gamli miðjumaður hóf ferilinn hjá Leikni en hann hefur leikið með liðinu í nokkur ár í gegnum tíðina.

Vigfús Arnar lék með Leikni 2004 og 2005 sem og árið 2007 og 2008.

Þess á milli var hann á mála hjá KR en hann lék einnig hluta af yngri flokkunum í Vesturbænum.

Í fyrra lék Vigfús Arnar tólf leiki með Fjölni í Pepsi-deildinni en hann yfirgaf félagið síðan að tímabilinu loknu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.