Fotbolti.net
26.03.10 - 16:23
Magnús Már Einarsson

Sandro til Tottenham (Staðfest)

Harry Redknapp.

Harry Redknapp.

Canon

Mynd: Getty Images

Tottenham hefur gengið frá kaupunum á brasilíska miðjumanninum Sandro en hann kemur til félagsins frá Internacional.
Þessi 21 árs gamli leikmaður kemur til Tottenham í sumar þegar að hann verður búinn að leika í Copa Libertadores keppninni.

,,Hann er framúrskarandi leikmaður sem á bjarta framtíð fyrir höndum,\" sagði Harry Redknapp stjóri Tottenham.

,,Hann er sterkur og grimmur miðjumaður. Hann hefur spilað með brasilíska landsliðinu og verið fyrirliði í yngri landsliðum.\"

,,Ég fór út að borða með Alex Ferguson á dögunum og hann sagði mér ótrúlega staðreynd. Það voru 14 eða 15 enskir leikmenn í Meistaradeildinni í fyrra en yfir 100 Brasilíumenn.\"

,,Þegar þú hugsar út í að þetta er Evrópumót þá sýnir þetta þér hvað Brasilíumenn hafa mikinn styrk og breidd og hann (Sandro) er einn af björtustu vonunum í Brasilíu.\"

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.