Fotbolti.net
26.03.10 - 18:44
Magnús Már Einarsson

Jón Davíð og Trausti í Hvöt (Staðfest)

Trausti Eiríksson.

Trausti Eiríksson.

Canon

Mynd: Kristján Blöndal

Hvöt hefur fengið Trausta Eiríksson og Jón Davíð Davíðsson til liðs við sig frá Þrótti.
Trausti er 22 ára gamall kantmaður en hann þekkir til hjá Hvöt eftir að hafa verið í láni hjá liðinu undanfarin tvö ár.

Jón Davíð er 22 ára gamall vinstri bakvörður og kantmaður en hann er uppalinn í Þrótti.

Jón Davíð á að baki leiki með U17 og U19 ára landsliði Íslands en hann hefur verið í fríi frá fótbolta undanfarin tvö ár.

Báðir leikmennirnir eru komnir með leikheimild og geta því leikið með Hvöt gegn Ými í Lengjubikarnum á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.