Jóhann Berg Guðmundsson hefur verið sterklega orðaður við heimkomu í uppeldisfélagið sitt Breiðablik en hann hefur tekið ákvörðun um að skrifa ekki undir samning, að svo stöddu hið minnsta.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net var komið samkomulag um kaup og kjör en leikmaðurinn tók svo ákvörðun um að skrifa ekki undir í Smáranum út af öðrum ástæðum.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net var komið samkomulag um kaup og kjör en leikmaðurinn tók svo ákvörðun um að skrifa ekki undir í Smáranum út af öðrum ástæðum.
Jóhann Berg spilaði síðast á Íslandi sumarið 2008. Hann hélt í kjölfarið til AZ Alkmaar í Hollandi og hefur í kjölfarið spilað með Charlton og Burnley á Englandi, Al-Orobah í Sádi-Arabíu og síðast Al Dhafra í Sameinuðu arabísku furstadæmunum en hann fékk samningi sínum rift þar í febrúar.
Jóhann Berg er 35 ára og lék í síðasta mánuði sinn 102. landsleik. Hann var hluti af íslenska landsliðinu sem fór á EM og HM.
Athugasemdir


