Mo Salah til Sádi? - Alonso klár ef skilyrði verða uppfyllt - Bastoni til Barca eða Liverpool - Hafa ekki áhyggjur af Rashford
banner
   fim 26. mars 2026 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Þá er hópurinn fullmótaður"
Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA.
Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik hjá KA á síðasta tímabili.
Fyrir leik hjá KA á síðasta tímabili.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Haddi á hliðarlínunni.
Haddi á hliðarlínunni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Úr leik hjá KA á undirbúningstímabilinu.
Úr leik hjá KA á undirbúningstímabilinu.
Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson
„Mér finnst það mjög eðlileg spá miðað við síðustu tímabil," segir Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, er honum var tjáð að KA væri í sjötta sæti í spá Fótbolta.net fyrir tímabilið sem er framundan.

„Við erum búnir að skipta út mörgum framarlega á vellinum og fá nýja leikmenn inn. Ungir strákar hafa tekið flott skref og við erum klárir í baráttuna."

Mætum klárir í mót
Haddi segir að það hafi gengið nokkuð vel hjá KA í vetur á undirbúningstímabilinu.

„Okkur hefur gengið fínt í vetur. Höfum spilað á mörgum leikmönnum og fengið góð svör hvar okkar strákar eru staddir. Við erum komnir með nokkra nýja leikmenn og eru þeir strax farnir að aðlagast vel. Við fínpússum okkar leikstíl næstu vikur og mætum klárir í mót," segir hann.

Hann er ánægður með leikmannahópinn en von er á enn frekari liðsstyrk.

„Ég er mjög ánægður með leikmannahópinn. Hópurinn er vel samansettur bæði stöðulega séð og aldurslega séð. Ungir leikmenn komnir með stærra hlutverk og margir hafa vaxið í vetur. Við erum komnir með góða og holla samkeppni og andinn í hópnum er frábær núna rétt fyrir mót. Ég á von á 1-2 leikmönnum í viðbót og þá er hópurinn fullmótaður."

Það sem við viljum standa fyrir í KA
KA hefur farið hægt af stað á síðustu tímabilum og það hefur verið þeirra akkilesarhæll. Ertu vongóður um að þið munið byrja betur en síðustu ár?

„Já, ég er vongóður um það og allir staðráðnir að byrja mótið vel. Fyrst og fremst viljum við sýna góða frammistöðu og að við séum stöðugt að bæta okkur. Við viljum sjá leikmennina leggja sig alla fram fyrir félagið og stuðningsmennina. Við viljum sjá að menn séu hungraðir í að bæta sig og þekkja okkar spilstíl út og inn. Við höfum bætt okkur mikið þegar liðið hefur á mótið undanfarin ár og sýnir það góðan karakter og trú á það sem við erum að gera."

„Þessi hópur hefur gengið í gegnum frábæra tíma og erfiða tíma. Við höfum notið góðu tímana og staðið saman og komist í gegnum erfiðu tímana og það er það sem við viljum standa fyrir í KA," segir Haddi.

„Markmiðin eru að gera betur en í fyrra. Við stefnum á topp sex og svo metum við stöðuna eftir 22 leiki. Við viljum alltaf leggja mikla áherslu á bikarinn og þegar þú hefur unnið hann einu sinni sem leikmaður, þjálfari eða stuðningsmaður þá langar þig að upplifa það ævintýri aftur."

Einhver skilaboð til stuðningsmanna að lokum?

„Ég hvet okkar frábæra KA fólk til að mæta á leiki og styðja við bakið á strákunum okkar eins og þau hafa gert undanfarin ár. Þetta verður frábært tímabil og okkur hlakkar öllum til að byrja og tala nú ekki um þegar við vígjum nýja leikvanginn okkar. Við munum leggja okkur alla fram að gera KA stuðningsmenn stolta af okkar liði og leggja okkur 100% fram í alla leiki. Það verður alvöru KA hjarta í okkar leikstíl og fullt af heimastrákum sem fá að láta ljós sitt skína í sumar," sagði Haddi að lokum.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner