| fim 26.mar 2026 12:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð |
|
Spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina: 7. sæti
Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Fram muni enda í sínu hefðbundna 7. sæti í Bestu deildinni í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig. KA tekur Forsetabikarinn enn eitt árið ef spáin rætist.
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. KA, 74 stig
8. Fram, 67 stig
9. FH, 46 stig
10. Þór, 36 stig
11. ÍBV, 22 stig
12. Keflavík, 17 stig
Um liðið: KA lenti í nokkrum vandræðum á síðasta tímabili og var framan af í mikilli fallbaráttu. KA-menn létu ekki bjóða sér það og fjárfestu í Birni Snæ Ingasyni í sumarglugganum. Eftir innkomu hans þá kom meira flæði í sóknarleikinn og KA bjargaði sér mjög örugglega að lokum. Þeir enduðu að lokum í sjöunda sæti og tóku hinn margrómaða Forsetabikar, sem hefur svolítið verið þeirra sport síðustu ár. Undirritaður þykist þó vita það að KA stefni hærra en það og þeir horfa í efri hlutann fyrir komandi tímabil. Þórsurum dreymir um það að enda fyrir ofan KA en fyrir gula og blái hluta Akureyrarbæjar er það ekki eitthvað sem kemur til greina. Bara alls ekki.
Þjálfarinn: Hallgrímur Jónasson er að fara inn í sitt fjórða tímabil sem aðalþjálfari KA. Þar áður var hann aðstoðarþjálfari liðsins. Hallgrímur er ungur að árum í þjálfun en hefur á mörgum köflum sýnt að það er margt spunnið í hann. Hallgrímur hefur verið undir mikilli pressu síðastliðin tímabil þegar liðið hefur byrjað illa en hann hefur alltaf náð að yfirstíga það og er hann með mikið traust frá félaginu og stuðningsmönnum. Hallgrímur var á leikmannaferli sínum öflugur varnarmaður sem spilaði 16 landsleiki fyrir Íslands hönd. Í þessum landsleikjum skoraði hann þrjú mörk.
Styrkleikar: Fram á við er KA-liðið alveg ótrúlega spennandi með marga hæfileikaríka leikmenn. Við sáum hvað Birnir Snær Ingason og Hallgrímur Mar Steingrímsson náðu vel saman á síðustu leiktíð og verður afar fróðlegt að sjá hvernig tenging hans verður við Danijel Dejan Djuric og Diego Montiel í sumar. Í sóknarleiknum er KA með marga hæfileikaríka leikmenn sem ættu að geta skemmt Akureyringum mikið. Að hafa Grímsa í sínu liði er bara mikill styrkleiki út af fyrir sig en hann eldist eins og gott rauðvín og er með bestu leikmönnum deildarinnar. Þegar gengur vel, þá myndast auðveldlega mikil stemning í kringum liðið eins og hefur sést á Evrópu- og bikarævintýrum síðustu ár. Þeir þurfa að finna þessa stemningu. Það er mikil uppbygging hjá KA og mikill metnaður hjá þeim sem eru í kringum félagið.
Veikleikar: Í fyrra var KA með eitt besta miðvarðapar deildarinnar í Hans Viktori Guðmundssyni og Ívari Erni Árnasyni. Ívar er núna farinn og það er spurning hvernig KA mun leysa miðvarðarstöðuna eins og staðan er núna. Þeir eru frekar þunnskipaðir þar og munu örugglega styrkja sig áður en mótið byrjar á þeim hluta vallarins. Ívar var líka mikill leiðtogi og það er mikill söknuður af honum hvað það varðar. Markvarslan hjá KA-mönnum hefur líka verið frekar óstöðug og þeir þurfa meiri stöðugleika þar, og svo munu þeir sakna Bjarna Aðalsteinssonar af miðjunni. Það hefur verið tískan hjá KA að byrja síðustu tímabil afar illa og það gengur bara ekki ef þú ætlar að komast í efri hluta deildarinnar og jafnvel reyna að berjast um einhver Evrópusæti. KA verður að hætta því og mæta af krafti til leiks í sumar.
Lykilmenn: Hans Viktor Guðmundsson og Hallgrímur Mar Steingrímsson
Eftir að Ívar Örn fór frá KA þá þarf Hans Viktor að stíga enn frekar upp. Hann fór með A-landsliðinu til Mexíkó snemma á þessu ári og það segir mikið til um það hvert hann er kominn á sínum ferli. Hans Viktor getur klárlega verið einn besti miðvörður deildarinnar og fyrir KA, þá þarf hann bara að vera það. Það þarf svo í raun ekki að segja mikið um Hallgrím Mar. Besti leikmaður í sögu KA, ruglað góður í fótbolta og verður bara betri með aldrinum. Getur verið besti leikmaður deildarinnar í sumar og það verður gaman að sjá hvernig tenging hans verður við nýja framherja Akureyrarliðsins.
Gaman að fylgjast með: Danijel Dejan Djuric
Það verður gaman að fylgjast með þessum skemmtilega leikmanni innan sem utan vallar. Djuric er frábær leikmaður sem getur tekið KA upp á næsta stig og hann hefur burði til að breyta leikjum. Það sem meira er, þá er hann ótrúlega skemmtilegur karakter sem mun lífga upp á deildina. Leikir KA og Þórs urðu mun meira spennandi eftir komu hans í deildina. Eins og hann sagði sjálfur, þá mun hann lita deildina miklum litum. Í KA eru líka margir ungir strákar sem beðið hefur verið eftir síðustu ár. Það verður fróðlegt að sjá hvort einhverjir þeirra muni taka stóra rullu í liðinu í sumar.
Spurningarnar: Hver mun spila í hafsent með Hans Viktori? Hvernig tengja Djuric og Hallgrímur Mar? Hvaða ungu strákar munu komast í gegn?
Völlurinn: KA flutti sig yfir á sitt svæði á Greifavöllinn fyrir nokkrum árum, en sá völlur er bara til bráðabirgða. Verið er að vinna að nýjum velli sem á að vera með yfirbyggða stúku fyrir 1000 manns. Ekki er alveg víst hvenær það verður klárt en þegar horft er á KA svæðið núna þá er stúkan farin að taka á sig mynd og það er klárt að það styttist í þetta. Þegar KA færir sig yfir, þá verður svæðið þeirra hið glæsilegasta.
Komnir:
Danijel Dejan Djuric frá Króatíu
Diego Montiel frá Vestra
Jeppe Pedersen frá Vestra
Samuel Kroon frá Svíþjóð
Jakob Héðinn Róbertsson frá Völsungi
Breki Hólm Baldursson frá ÍR (var á láni)
Ívar Arnbro Þórhallsson frá Völsungi (var á láni)
Kári Gautason frá HK (var á láni)
Ívar Logi Jóhannesson frá Hetti
Þórhallur Ási Aðalsteinsson frá Hetti
Dagbjartur Búi Davíðsson frá Þór (var á láni)
Bjarki Fannar Helgason frá Hetti/Hugin (var á láni)
Árni Veigar Árnason frá Hetti/Hugin (var á láni)
Farnir:
Ívar Örn Árnason í Breiðablik
Birnir Snær Ingason í Stjörnuna
Bjarni Aðalsteinsson til Danmerkur
Marcel Römer til Danmerkur
Ingimar Torbjörnsson Stöle til Vals
Jonathan Rasheed til Gautaborgar
Viðar Örn Kjartansson á Selfoss
Andri Fannar Stefánsson í Magna
Dagur Ingi Valsson í Keflavík
William Tonning til Svíþjóðar
Leikmannalisti:
1. Ívar Arnbro Þórhallsson (m)
13. Steinþór M. Auðunsson (m)
2. Birgir Baldvinsson
3. Kári Gautason
7. Jóan Símun Edmundsson
8. Jeppe Pedersen
9. Bjarki Fannar Helgason
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
11. Ásgeir Sigurgeirsson
14. Danijel Dejan Djuric
15. Bjarki Fannar Helgason
17. Jakob Héðinn Róbertsson
18. Samuel Kroon
20. Diego Montiel
21. Mikael Breki Þórðarson
22. Hrannar Björn Steingrímsson
23. Markús Máni Pétursson
25. Rodrigo Mateo
27. Árni Veigar Árnason
28. Hans Viktor Guðmundsson
29. Jakob Snær Árnason
30. Guðjón Ernir Hrafnkelsson
44. Valdimar Logi Sævarsson
77. Breki Hólm Baldursson
80. Snorri Kristinsson
99. Jóhann Mikael Ingólfsson
Ívar Logi Jóhannsson
Þórhallur Ási Aðalsteinsson
Fyrstu fimm leikir KA:
12. apríl, KA - Stjarnan (Greifavöllurinn)
17. apríl, KA - Víkingur R. (Greifavöllurinn)
22. apríl, ÍA - KA (ELKEM völlurinn)
26. apríl, KA - Keflavík (Greifavöllurinn)
2. maí, Þór - KA (Þórsvöllur)
Spámennirnir: Anton Freyr Jónsson, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Haraldur Örn Haraldsson, Jóhann Þór Hólmgrímsson, Kári Snorrason, Stefán Marteinn Ólafsson, Sverrir Örn Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke, Sölvi Haraldsson, Tómas Þór Þórðarson og Valur Gunnarsson.

Athugasemdir