26.04.06 - 10:17
Magnús Már Einarsson
Ernest til ÍR (Staðfest)

Úr leik ÍR og Tindastóls á síðustu leiktíð.

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

ÍR hefur samið við varnarmanninn Ernest Essombe frá Kamerún og mun hann leika með liðinu í annarri deildinni í sumar en þetta staðfesti Magnús Þór Jónsson þjálfari liðsins við Fótbolti.net í dag.
Ernest var með ÍR-ingum í æfingabúðum í Danmörku fyrr í mánuðinum og náði hann að heilla Breiðhyltinga nóg til að þeir ákváðum að semja við hann.
Þessi 25 ára leikmaður er væntanlegur hingað til lands á næstu dögum en hann á unglingalandsleiki að baki fyrir Kamerún. Hann lék í vetur í frönsku þriðju deildinni en var áður á mála hjá Strasbourg, Lille og liði í Bandaríkjunum.