26.04.07 - 13:31
Magnús Már Einarsson
Middlesbrough kaupir Jonathan Woodgate (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Middlesbrough hefur staðfest kaupin á varnarmanninum Jonathan Woodgate á sjö milljónir punda en hann hefur verið á láni hjá félaginu frá því í ágúst síðastliðnum.
Woodgate hefur nu gengið alveg til liðs við Boro og hefur þessi fyrrum leikmaður Leeds og Newcastle gert fjögurra ára samning við félagið.
Woodgate sem hefur leikið 33 leiki af 41 hjá Boro á tímabilinu kom til félagsins eftir tvö vonbrigðartímabil hjá Real Madrid þar sem hann var mikið meiddur.
Hann hefur leikið vel á tímabilinu og var meðal annars kallaður aftur í enska landsliðið fyrir vináttulandsleik gegn Spánverjum í febrúar síðastliðnum.
Woodgate kostaði Real Madrid 13,4 milljónir punda þegar að spænska félagið keypti hann frá Newcastle í ágúst árið 2004.

Heimild: BBC