Þrettán leikmenn gætu yfirgefið Man Utd - Liverpool á eftir leikmanni Betis
   sun 26. apríl 2026 22:58
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Oviedo nálgast fall - Villarreal á leið í Meistaradeildina
Það þarf eitthvað ótrúlegt að gerast til að Villarreal spili ekki í Meistaradeildinni á næstu leiktíð
Það þarf eitthvað ótrúlegt að gerast til að Villarreal spili ekki í Meistaradeildinni á næstu leiktíð
Mynd: EPA
Spænska liðið Real Oviedo þarf algert kraftaverk til þess að halda sér upp í La Liga fyrir næstu leiktíð. Villarreal er þá komið með annan fótinn í Meistaradeild Evrópu.

Oviedo tapaði fallbaráttuslag við Elche, 2-1, á heimavelli sínum. Pedro Bigas og Gonzalo Villar skoruðu tvö mörk fyrir Elche á rúmum stundarfjórðungi, en heimamenn svöruðu ekki fyrr en á 76. mínútu með marki Ilyas Chaira, sem reyndist eina mark Oviedo í leiknum.

Oviedo er á botninum með 28 stig og þarf því meira og minna að vinna rest til þess að eiga einhvern möguleika á að halda sér upp í deildinni. Sigur Elche fleygði liðinu upp um fjögur sæti og er það nú fjórum stigum fyrir ofan fallsæti.

Villarreal er á leið í Meistaradeild Evrópu og verður líklegast (Staðfest) sett á það í næstu umferð. Villarreal vann Celta Vigo, 2-1, í kvöld.

Gerard Moreno og Nicolas Pepe skoruðu mörk Villarreal sem er í 3. sæti með 65 stig. Það þarf aðeins eitt stig í viðbót til þess að tryggja sætið.

Úrslit og markaskorarar:

Osasuna 2 - 1 Sevilla
0-1 Neal Maupay ('69 )
1-1 Raul Garcia ('80 )
2-1 Alejandro Catena ('90 )

Oviedo 1 - 2 Elche
0-1 Pedro Bigas ('6 )
0-2 Gonzalo Villar ('16 )
1-2 Ilyas Chaira ('76 )
Rautt spjald: German Valera, Elche ('90)

Villarreal 2 - 1 Celta
1-0 Gerard Moreno ('2 , víti)
2-0 Nicolas Pepe ('29 )
2-1 Borja Iglesias ('73 , víti)
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 33 28 1 4 87 30 +57 85
2 Real Madrid 33 23 5 5 68 31 +37 74
3 Villarreal 33 20 5 8 59 38 +21 65
4 Atletico Madrid 33 18 6 9 56 37 +19 60
5 Betis 33 12 14 7 49 41 +8 50
6 Celta 33 11 11 11 45 43 +2 44
7 Getafe 33 13 5 15 28 34 -6 44
8 Real Sociedad 33 11 10 12 52 52 0 43
9 Osasuna 33 11 9 13 39 40 -1 42
10 Athletic 33 12 5 16 36 48 -12 41
11 Vallecano 33 9 12 12 33 41 -8 39
12 Valencia 33 10 9 14 37 48 -11 39
13 Elche 33 9 11 13 44 50 -6 38
14 Espanyol 32 10 8 14 37 49 -12 38
15 Girona 33 9 11 13 36 50 -14 38
16 Alaves 33 9 9 15 38 49 -11 36
17 Mallorca 33 9 8 16 41 51 -10 35
18 Sevilla 33 9 7 17 40 55 -15 34
19 Levante 32 8 8 16 37 50 -13 32
20 Oviedo 33 6 10 17 26 51 -25 28
Slapp
banner
banner
banner