Fotbolti.net
26.05.06 - 19:45
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Karl Svensson til Rangers (Staðfest)

Svensson gegnur til liðs við Paul Le Guen og félaga eftir HM í sumar

Svensson gegnur til liðs við Paul Le Guen og félaga eftir HM í sumar

Canon

Mynd: Getty Images

Glasgow Rangers gengu í dag frá kaupnum á sænska landsliðsmanninum Karl Svensson frá IFK Gautaborg. Svensson, sem er í 23 manna hópi Svía fyrir Heimsmeistarakeppnina í sumar, skrifaði undir þriggja ára samning við Rangers.
,,Ég er mjög ánægður að ganga til liðs við jafnfrábæran klúbb og Glasgow Rangers og þetta er næsta skref á mínum ferli. Ég naut tímans með IFK Gautaborg en þetta er gott tækifæri fyrir mig til að bæta mig sem leikmaður,” sagði Svensson.

Svensson eru önnur stóru kaup nýja þjálfarans Paul Le Guen en áður hafði hann fengið hinn tékkneska Libor Sionko til liðs við sig. Svensson er 22 ára gamall enhefur þrátt fyrir ungan aldur borið fyrirliðabandið með Gautaborg.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.