Fotbolti.net
26.05.07 - 06:01
Andri Fannar Stefánsson

Óli Þór Birgisson í Hamranna (Staðfest)

Óli í leik með KA.

Óli í leik með KA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Miðvallarleikmaðurinn Óli Þór Birgisson er genginn til liðs við 3. deildarlið Hamrana á Akureyri en hann lék með KA sl. sumar áður en hann hélt út til Bandaríkjanna til náms.
Óli sem er uppalinn hjá Skallagrím hefur leikið 44 leiki fyrir KA í efstu og fyrstu deild og skorað í þeim tvö mörk.

Hann verður löglegur í dag þegar Hamrarnir mæta Neista D. í Boganum kl. 16:00 í þriðju deildinni.

,,Óli Þór mun styrkja liðið gríðarlega enda klókur leikmaður sem kann þetta. Hann hefur reynslu að alvöru fótbolta og veit um hvað þetta snýst. Það eru nákvæmlega þannig leikmenn sem við hjá Hömrunum viljum og er alltaf þörf fyrir leikmenn sem eru tilbúnir að leggja sig fram fyrir félagið," sagði Stefán Rúnar Árnason þjálfari Hamranna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.