Fotbolti.net
26.05.11 - 19:28
Magnús Már Einarsson

Chris Coleman ráðinn þjálfari Larissa (Staðfest)

Chris Coleman ráðinn þjálfari Larissa (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Chris Coleman hefur verið ráðinn þjálfari Larissa í Grikklandi en frá þessu var greint í dag.

Coleman skrifaði undir eins árs samning með möguleika á tveggja ára framlengingu.

Coleman hefur áður stýrt Fulham, Real Sociedad og Coventry en hann var í fríi frá fótboltanum á nýliðnu tímabili.
Margir íslenskir knattspyrnuáhugamenn muna eftir því þegar KR sló Larissa úr leik í Evrópudeildinni árið 2009. Gríska félagið hefur verið í lægð undanfarin ár og það leikur núna í fyrstu deildinni.

Grískir fjölmiðlar segja að Coleman fái 120 þúsund evrur í laun á ári en hann mun einnig fá 100 þúsund evrur í bónusgreiðslu ef liðið nær að endurheimta sæti sitt í úrvalsdeildinni.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.