Fotbolti.net
26.06.07 - 14:29
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Ítalska deildin

David Suazo til Inter Milan (Staðfest)

Suazo er loksins kominn til Inter Milan

Suazo er loksins kominn til Inter Milan

Canon

Mynd: Getty Images

Inter Milan hefur loksins gengið frá kaupunum á sóknarmanninum David Suazo frá Cagliari en þessi landsliðsmaður frá Hondúras skrifaði undir fjögurra ára samning við félagið.
Sagan endalausa um kaupin á þessum 27 ára leikmanni er því loks á enda en fyrir tveimur vikum síðan leit allt út fyrir að Inter hefði gengið frá kaupunum á kappanum.

Massimo Cellino forseti Cagliari var hins vegar ósáttur með hversu langan tíma það tók fyrir Inter að ganga frá kaupunum og bauð AC Milan leikmanninn.

Stuttu síðar tilkynnti AC að leikmaðurinn myndi spila með þeim á næsta tímabili áður en þeir áttuðu sig á því að leikmaðurinn hafði skrifað undir samning við Inter.

Suazo skoraði fjórtan mörk á síðasta tímabili og tímabilið þar á undan skoraði hann hvorki meira né minna en 22 mörk. Þá var hann valinn besti erlendi leikmaðurinn í Serie A fyrr á þessu ári ásamt brasilíska leikstjórnandanum Kaka hjá AC Milan.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.