26.06.08 - 17:26
Magnús Már Einarsson
Marcelo Lippi tekur aftur við Ítölum (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Marcelo Lippi hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Ítala að nýju en þetta var tilkynnt nú síðdegis.
Lippi tekur við af Roberto Donadoni sem var látinn taka poka sinn fyrr í dag.
Donadoni tók við af Lippi eftir sigur Ítala á HM 2006 en liðið datt út í 8-liða úrslitum EM á dögunum.
Lippi, sem er sextugur, mun formlega vera kynntur sem nýr þjálfari á fréttamannafundi næstkomandi þriðjudag.
Lippi er hokinn af reynslu en á ferlinum hefur hann meðal annars stýrt Juventus, Inter og Napoli.

Heimild: Sky