26.06.09 - 13:00
Gunnar Gunnarsson
Mark Yeates til Middlesbrough (Staðfest)

Mark Yeats (til hægri) er genginn til liðs við Middlesbrough frá Colchester.

Mynd: Getty Images

Gareth Southgate þjálfari Middlesbrough hefur keypt fyrsta leikmanninn til félagsins í sumar en það er vængmaður frá Colchester að nafni Mark Yeates.
Þessi 24 ára gamli leikmaðurinn hefur skrifað undir þriggja ára samning eftir að hafa samið um kjör sín við félagið og staðist læknisskoðun en Mark Yeates ætlar sér að hjálpa Middlesbrough að endurheimta sæti sitt í ensku úrvalsdeildinni.
,,Þetta er stórt tækifæri fyrir mig. Það var áhugi frá mörgum félögum en þegar umboðsmaður minn sagði mér að Middlesbrough hefðu haft samband þá kom ekkert annað félag til greina,\" sagði Yeates.
,,Þetta félag á heima í ensku úrvalsdeildinni, stuðningsmennirnir eiga það skilið og ég get ekki beðið eftir að fá að spila á Riverside,\" sagði Yeates og hélt áfram.
,,Þetta er úrvalsdeildarfélag í mínum huga, þú þarft bara að líta á aðbúnaðinn hjá liðinu, æfingaaðstöðuna, völlinn, þetta er allt fullkomið,\" sagði hinn írski Yeates.
Mark Yeates kemur til með að hitta sína nýju liðsfélaga í næstu viku þegar undirbúningstímabilið hefst en forráðamenn Middlesbrough vonast eftir stuttri dvöl í Championship deildinni.

Heimild: Soccernet