26.06.09 - 13:35
Magnús Már Einarsson
Djibril Cisse til Panathinaikos (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Gríska félagið Panathinaikos hefur keypt franska framherjann Djibril Cisse frá Marseille.
Kaupverðið hefur ekki verið gefði upp en talið er að Marseille fái um átta milljónir evra fyrir leikmanninn.
Cisse, sem er 27 ára gamli, var á síðustu leiktíð í láni hjá Sunderland en nú hefur hann gert fjögurra ára samning við Panathinakos og mun sá samningur færa honum 2,5 milljónir evra í árslaun samkvæmt fregnum frá Grikklandi.
Cisse kom til Grikklands í gær en 2500 stuðningsmenn Panathinaikos tóku á móti honum á Eleftherios Venizelos flugvellinum.
Panathinaikos er að styrkja sig þessa dagana en gríska félagið er einnig að fá Kostas Katsouranis frá Benfica, Sebastian Leto frá Liverpool og sænska varnarmanninn Mattias Bjarsmyr frá IFK Gautaborg.

Heimild: Sporting Life