26.06.09 - 15:24
Hafliði Breiðfjörð
Glen Johnson til Liverpool (Staðfest)

Glen Johnson er kominn til Liverpool.

Mynd: Getty Images

Glen Johnson er kominn til Liverpool.

Mynd: Getty Images
Glen Johnson varnarmaður enska landsliðsins skrifaði í dag undir fjögurra ára samning við Liverpool en hann er bakvörður sem kemur frá Portsmouth og er fyrstu kaup Liverpool í sumar.
Johnson hóf feril sinn hjá West Ham undir stjórn Harry Redknapp en eftir 15 leiki þar og lán hjá Millwall keypti Chelsea hann árið 2003. Hann spilaði sinn fyrsta leik með Chelsea gegn Liverpool í ágúst sama ár.
Þremur mánuðum síðar spilaði hann sinn fyrsta landsleik gegn Danmörku er hann kom inná sem varamaður fyrir Gary Neville.
Með Chelsea vann hann ensku úrvalsdeildina og deildabikarinn en var svo lánaður til Portsmouth árið 2006.
Hann var svo keyptur þangað ári síðar og sló í gegn hjá liðinu sem vann með honum enska bikarinn árið 2008.

Heimild: Vefur Liverpool