Fotbolti.net
26.06.11 - 08:56
Magnús Már Einarsson

Joaquin til Malaga (Staðfest)

Joaquin til Malaga (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Malaga hefur keypt kantmanninn Joaquin Sanchez frá Valencia en talið er að kaupverðið hljóði upp á 4 milljónir evra.
Þessi þrítugi leikmaður hefur samþykkt þriggja ára samning en hann verður formlega kynntur sem leikmaður Malaga á morgun.

Joaquin kom til Valencia frá Real Betis á 25 milljónir evra árið 2006 en náði ekki að slá í gegn hjá fyrrnefnda félaginu.

Sheikh Abdullah Al-Thani frá Katar keypti Malaga á dögunum og ætlar sér stóra hluti með félagið.

Auk Joaquin hafa Ruud van Nistelrooy, Jeremy Toulalan, Diego Buananotte, Joris Mathijsen og Ignacio Monreal gengið til liðs við Malaga í sumar.

Heimild: AP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.