Viktor Gyökeres, sænskur framherji Sporting Lissabon, hefur breytt forgangsröðun sinni og sett Manchester United í efsta sæti samkvæmt frétt Mirror.
Áður hafði hann haft Arsenal sem sinn helsta valkost, en nú virðist hann tilbúinn til að endurnýja samstarf við Rúben Amorim hjá Manchester United.
Áður hafði hann haft Arsenal sem sinn helsta valkost, en nú virðist hann tilbúinn til að endurnýja samstarf við Rúben Amorim hjá Manchester United.
Gyökeres, sem er 27 ára gamall, skoraði 54 mörk í 52 leikjum á síðasta tímabili. Hann vill spreyta sig í einni af stærstu deildum Evrópu, en félagið hans, Sporting, hefur ekki fengið nein formleg tilboð fyrir leikmanninn þrátt fyrir áhuga frá mörgum liðum.
Sporting hefur sett hátt verð á Gyökers, um 86 milljónir punda, sem hefur valdið óánægju hjá leikmanninum og fulltrúum hans.
Gyökeres hefur áður hafnað tilboði frá Al-Hilal í Sádi-Arabíu. Hann vill helst vera áfram í Evrópu og keppa á hæsta stigi. Önnur stórlið, eins og Real Madrid, Liverpool, Juventus og Bayern München, hafa ekki sýnt mikinn áhuga á sænska leikmanninum. Arsenal sýnir áhuga en virðist þó frekar horfa til Benjamin Sesko hjá RB Leipzig.
Manchester United er nú í kjörstöðu til að semja við Gyökeres, en liðið þarf fyrst að selja leikmenn áður en það getur fjárfest í stórum kaupum. Með aðgerðum til að losa sig við leikmenn á borð við Alejandro Garnacho, Marcus Rashford og Jadon Sancho gæti félagið verið tilbúið til að kaupa Gyökeres.
Athugasemdir