Fotbolti.net
26.07.06 - 13:39
Guðmundur Dagur Ólafsson

Fortune til Bolton (Staðfest)

Fortune spilaði aðeins 76 leiki á 7 árum með Man Utd

Fortune spilaði aðeins 76 leiki á 7 árum með Man Utd

Canon

Mynd: Getty Images

Suður afríski landsliðsmaðurinn Quinton Fortune hefur gert eins árs samning við enska úrvalsdeildarfélagið Bolton Wanderers.
Hann hefur verið á reynslu hjá félaginu undanfarnar vikur til að sanna að hann sé laus við öll meiðsli en þar áður hafði hann verið sjö tímabil hjá Manchester United en aðeins spilað 76 leiki vegna endalausra meiðslavandræða.

Fortune hefur spilað báða æfingaleiki Bolton á tímabilinu og Sam Allardyce, knattspyrnustjóri félagsins, staðfesti eftir tap gegn Burnley að hann hafi gert nóg til að sannfæra sig um að hann eigi heima hjá félaginu.

Þetta eru þriðju kaup Bolton í sumar en áður höfðu þeir fengið þá Idan Tal og Abdoulaye Meite en Allardyce býst við að Fortune eigi eftir að gegna lykilhlutverki hjá félaginu á komandi tímabili.

"Quinton er leikmaður sem ég hef dáðst að í mjög langan tíma. Hann er gæða leikmaður sem hefur reynslu í Úrvalsdeildinni og hann er mjög fjölhæfur. Hann er kærkominn viðbót í hópinn okkar," sagði Allardyce við opinbera heimasíðu Bolton í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.