26.07.06 - 16:33
Guðmundur Dagur Ólafsson
Pennant til Liverpool (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Enska Úrvalsdeildarfélagið Liverpool hefur gengið frá kaupunum á hægri kantmanninum Jermaine Pennant frá Birmingham City fyrir 6.2m punda en hann stóðst læknisskoðun hjá félaginu í morgun.
Pennant, sem var hjá Arsenal áður enn hann kom til Birmingham, skrifar undir 4 ára samning við Liverpool en hann mun klæðast treyju númer 16 hjá félaginu á næsta tímabili.
Þetta bindur enda á leit Rafa Benitez að hægri kantmanni en Pennant, sem er 23 ára gamall, mun væntanlega spila sinn fyrsta leik fyrir félagið gegn Kaiserslautern um helgina.
Þetta eru jafnframt fimmtu kaup Benitez í sumar en Pennant fylgir á eftir þeim Craig Bellamy, Mark Gonzalez, Fabio Aurelio og Gabriel Paletta.