26.07.07 - 11:27
Magnús Már Einarsson
Einar Guðnason til Völsungs á láni (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Völsungur úr annarri deild karla hefur fengið sóknarmanninn Einar Guðnason að láni frá Víkingi Reykjavík. Einar hefur í sumar leikið með og verið aðstoðarþjálfari hjá Berserkjum, B-liði Víkinga og skorað eitt mark í fimm leikjum í þriðju deildinni.
Hann mun auk þess að leika með Völsungi í annarri deildinni þjálfa Berserki út tímabilið.
Einar þekkir til á Húsavík því hann skoraði fjögur mörk í níu leikjum með Völsungi í annarri deildinni í fyrra.
Einar er kominn með leikheimild með Völsungi og getur því leikið með liðinu gegn Haukum í annarri deildinni annað kvöld.