26.07.09 - 14:16
Magnús Már Einarsson
Hafþór Ægir Vilhjálmsson í Þrótt á láni (Staðfest)

Mynd: Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Mynd: Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Þróttarar hafa fengið kantmanninn Hafþór Ægi Vilhjálmsson á láni frá Val út tímabilið.
Hafþór Ægir er uppalinn hjá ÍA en hann gekk í raðir Vals um haustið árið 2006.
Í fyrra lék Hafþór Ægir átján leiki með Valsmönnum og skoraði í þeim eitt mark.
Í sumar hefur þessi 22 ára gamli leikmaður komið við sögu í sjö leikjum í Pepsi-deildinni en hann kom inn á sem varamaður í leik Vals og Fjölnis síðastliðið fimmtudagskvöld.
Hafþór Ægir er kominn með leikheimild með Þrótti og getur því leikið með liðinu gegn KR í Pepsi-deildinni annað kvöld.
Hann er fjórði leikmaðurinn sem Þróttarar fá síðan að félagaskiptaglugginn opnaði um miðjan mánuðinn en áður höfðu Sam Malsom, Dusan Ivkovic og Milos Tanasic gengið í raðir félagsins.