Fotbolti.net
26.07.11 - 09:00
Mist Rúnarsdóttir

Melissa Cary til ÍBV (Staðfest)

Lið ÍBV fær liðsstyrk

Lið ÍBV fær liðsstyrk

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Kvennaboltinn
ÍBV hefur fengið liðsstyrk en miðjumaðurinn Melissa Cary mun leika með liðinu út tímabilið.

Melissa er ítölsk-bandarísk og kemur frá liði Indíana í Bandaríkjunum. Þar áður lék hún með Bardolina á Ítalíu og var í leikmannahópi liðsins þegar það komst í undanúrslit Meistaradeildarinnar árið 2009.

ÍBV missti Eddu Maríu Birgisdóttur yfir í Stjörnuna nú fyrir stuttu auk þess sem að liðið hefur átt í meiðslavandræðum og Eyjamenn binda vonir við að Melissa styrki liðið í baráttunni sem framundan er.
ÍBV heimsækir Aftureldingu í Mosfellsbæ kl.18:00 í kvöld en þegar fréttin er skrifuð var Melissa ekki komin með leikheimild og það verður því fróðlegt að sjá hvort að þau mál gangi í gegn í dag og hún taki þátt í leiknum.

Heimild: ÍBVsport.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.