26.07.11 - 08:00
Mist Rúnarsdóttir
Rakel Ýr Einarsdóttir í Breiðablik (Staðfest)

Blikar fá efnilegan liðsstyrk úr Breiðholtinu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Blikar fá efnilegan liðsstyrk úr Breiðholtinu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hin bráðefnilega Rakel Ýr Einarsdóttir er gengin til liðs við Breiðablik en hún kemur þangað frá Leikni Reykjavík þar sem hún er uppalin.
Rakel Ýr er fædd árið 1995 og er því á eldra ári í 3.flokki. Hún hefur leikið með jafnöldrum sínum í drengjaflokkum Leiknis undanfarin ár og vakið athygli fyrir góða frammistöðu.
Hún þykir mikið efni og hefur leikið 8 leiki með U17 ára landsliðinu og skorað í þeim eitt mark.
Það er ljóst að Blikar kræktu þarna í góðan leikmann sem gaman verður að fylgjast með í framtíðinni en Rakel Ýr er í leikmannahópi meistaraflokks sem tekur á móti KR í kvöld kl.19:15.