Fotbolti.net
26.07.11 - 17:15
Elvar Geir Magnússon

Angel Martinez til Blackpool (Staðfest)

Mahamadou Diarra og Angel Martinez.

Mahamadou Diarra og Angel Martinez.

Canon

Mynd: Getty Images

Blackpool hefur keypt spænska leikmanninn Angel Martinez sem lék á sínum tíma með U21-landsliði Spánar. Þessi 25 ára miðjumaður hefur gert tveggja ára samning við Blackpool sem féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.
„Ég tek þessum félagaskiptum mjög alvarlega. Ég er að flytja til Blackpool með kærustunni minni og barni. Ég hlakka mikið til,\" segir Martinez sem kemur frá Espanyol.

„Ég hef allan minn feril á Spáni svo ég vonast til að öðlast reynslu með því að spila fótbolta í öðru landi. Það verður gaman að læra af nýjum þjálfara.\"

Blackpool hefur fengið sjö nýja leikmenn til félagsins í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.