Fotbolti.net
26.07.11 - 18:20
Magnús Már Einarsson

Kenny Miller til Cardiff (Staðfest)

Kenny Miller til Cardiff (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Aron Einar Gunnarsson hefur fengið nýjan liðsfélaga hjá Cardiff City en félagið hefur keypt framherjann Kenny Miller frá Bursaspor fyrir eina milljón punda.
Þessi 31 árs gamli leikmaður hefur leikið með Rangers, Celtic, Wolves og Derby á ferli sínum.

Hann fór til Bursaspor í janúar þar sem hann skoraði fimm mörk í 15 leikjum.

Cardiff er einnig að fá framherjann unga Rudy Gestede en hann hefur staðið sig vel með U19 ára landsliði Frakka.

Heimild: Goal

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.