26.07.11 - 07:39
Magnús Már Einarsson
Santi Cazorla til Malaga (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Malaga hefur keypt kantmanninn Santi Cazorla frá Villareal en hann er níundi leikmaðurinn sem kemur til félagsins í sumar.
Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en talið er að hinn 26 ára gamli Cazorla hafi kostað í kringum 20 milljónir punda.
Cazorla, sem var orðaður við Arsenal fyrr í sumar, var í liði Spánverja sem sigraði EM 2008 en hann missti af HM í fyrra vegna bakmeiðsla.
Sheikh Abdullah Al-Thani frá Katar keypti Malaga fyrr á árinu og það er nóg til hjá félaginu eftir komu hans.
Auk Cazorla hafa leikmenn eins og Jeremy Toulalan, Ruud van Nistelrooy og Joaquin samið við félagið í sumar.

Heimild: Sky