Fotbolti.net
26.07.23 - 18:07
Brynjar Ingi Erluson

Henderson kveður Liverpool - „Ég verð Poolari til æviloka“

Henderson kveður Liverpool - „Ég verð Poolari til æviloka“
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Enski miðjumaðurinn Jordan Henderson hefur opinberlega kvatt enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool en hann verður væntanlega kynntur sem nýr leikmaður Al-Ettifaq í dag eða á morgun.
Henderson var á mála hjá Liverpool í tólf ár en hann kom til félagsins frá Sunderland árið 2011.

Hann var einn af mikilvægustu leikmönnum liðsins undir stjórn Jürgen Klopp og var síðar gerður að fyrirliða félagsins.

Al-Ettifaq hefur komist að samkomulagi við Liverpool um kaup á Henderson en það greiðir 14 milljónir punda og gerir hann þriggja ára samning.

Henderson mætti á æfingu hjá Al-Ettifaq í dag og sendi í kjölfarið frá sér kveðju á Instagram.

„Það er erfitt að koma þessum tólf árum fyrir í orð og enn erfiðara að kveðja. Ég verð Poolari til æviloka. Takk fyrir allt,“ sagði Henderson á Instagram, en kveðjumyndbandið má sjá hér fyrir neðan.

<b>Enski boltinn</B> - Félagaskipti og undirbúningstímabilið

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.