Fotbolti.net
26.08.10 - 12:00
Magnús Már Einarsson

Sebastien Squillaci til Arsenal (Staðfest)

Sebastien Squillaci til Arsenal (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Arsenal hefur keypt franska varnarmanninn Sebastien Squillaci frá Sevilla.
Þessi þrítugi leikmaður stóðst læknisskoðun hjá Arsenal í gær og skrifaði í kjölfarið undir samning við félagið.

Squillaci mun styrkja vörn Arsenal en Sol Campbell, William Gallas og Mikael Silvestre hafa allir farið frá félaginu í sumar.

Squillaci mun ekki leika með Arsenal gegn Blackburn um helgina en hann ætti hins vegar að geta komið inn í liðið eftir landsleikjahléið sem kemur í kjölfarið.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.