Fotbolti.net
26.08.11 - 07:34
Magnús Már Einarsson

Iago Falque til Tottenham (Staðfest)

Harry Redknapp.

Harry Redknapp.

Canon

Mynd: Getty Images

Tottenham hefur fengið miðjumanninn Iago Falque á láni frá Juventus en samningurinn gildir út tímabilið.
Þessi 21 árs gamli miðjumaður hóf ferilinn hjá Brcelona áður en hann fór til Juventus.

Síðustu tvö tímabil hefur hann síðan verið á láni hjá Bari og Villareal B á Spáni.

Tottenham tilkynnti um komu Falque í gærkvöldi, skömmu eftir að Emmanuel Adebayor kom til félagsins frá Manchester City.

Möguleiki er á að Harry Redknapp fái fleiri leikmenn til félagsins áður en félagaskiptaglugginn lokar en Lassana Diarra miðjumaður Real Madrid hefur meðal annars verið sterklega orðaður við Spurs.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.