Fotbolti.net
26.08.11 - 15:00
Hörður Snævar Jónsson
Ítalska deildin

Aquilani lánaður til AC Milan (Staðfest)

Aquilani lánaður til AC Milan (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

AC Milan hefur fengið miðjumanninn Alberto Aquilani á láni frá Liverpool út leiktíðina.
Aquilani hefur ekki komist í hóp hjá Liverpool í byrjun þessarar leiktíðar en hann var á láni hjá Juventus á síðustu leiktíð.

,,Þetta er frábært skref fyrir Alberto,\" sagði Kenny Dalglish stjóri Liverpool.

,,Hann er með konu sína og börn þarna og þetta var erfitt fyrir hann. Þegar hann kom til baka eftir undirbúningstímabilið var hann frábær.\"

,,Hann spilaði nokkra leiki og gerði vel í þeim en vandamálið er að við reyndum að finna pláss fyrir hann en gátum það ekki.\"

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.