Fotbolti.net
26.08.11 - 16:29
Hörður Snævar Jónsson

Dedryck Boyata lánaður til Bolton frá City (Staðfest)

Dedryck Boyata lánaður til Bolton frá City (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Dedryck Boyata hefur verið lánaður til Bolton frá Manchester City út þessa leiktíð.
Þessi 20 ára gamli varnarmaður kemur frá Belgíu en hann spilaði sinn fyrsta landsleik á síðasta ári.

Hann er sjötti leikmaðurinn sem Owen Coyle fær til félagsins á þessari leiktíð.

,,Ég er glaður með að fá Dedryck því það var áhugi frá fleiri félögum að fá hann á láni,\" sagði Coyle.

,,Að fá leikmann eins og Dedryck á þessum aldri og með þessa hæfileika sem við höfum sýnt að getur virkað vel.\"

Heimild: Heimasíða Bolton

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.