Fotbolti.net
26.09.09 - 19:06
Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Már Guðmundsson í FH (Staðfest)

Gunnar Már Guðmundsson í FH (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Gunnar Már Guðmundsson er genginn í raðir FH frá Fjölni en þetta staðfesti Einar Hermannsson formaður meistaraflokksráðs Fjölnis við Fótbolta.net í kvöld.
Einar sagði að fimm félög hafi viljað fá Gunnar í sínar raðir en aðeins FH hafi fengið að ræða við Gunnar og hann samdi við félagið.

,,Það voru fótboltaleg sjónarmið sem réðu ferð og vilji Gunnars til að fara í FH,\" sagði Einar við Fótbolta.net í kvöld.

,,Við ákváðum að í ljósi þess að Gunni er búinn að skrifa sögu Fjölnis að láta hann ráða ferðinni. Við erum mjög sáttir við okkar hlut og Gunni við sinn. Ég held að hann eig bjarta framtíð fyrir sér í FH.\"

,,Félagið kemur til með að sakna Gunna en þetta er rétt skref miðað við að Fjölnir er fallið í 1.deildina. Gunni vex með þeim verkefnum sem honum er treyst fyrir og hann kemur klárlega til með að styrkja FH.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.