Fotbolti.net
26.09.09 - 22:51
Hafliði Breiðfjörð

Páll Einarsson tekinn við Þrótti (Staðfest)

Páll Einarsson þjálfar Þrótt í 1. deildinni á næstuleiktíð.

Páll Einarsson þjálfar Þrótt í 1. deildinni á næstuleiktíð.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Páll Einarsson er nýr þjálfari Þróttar en þetta var staðfest á lokahófi félagsins nú rétt í þessu.
Páll Einarsson hefur verið aðstoðarþjálfari Ólafs Þórðarsonar með Fylki í sumar og stýrði liðinu í síðasta sinn gegn FH í lokaumferð Pepsi-deildarinnar í kvöld.

Hann skrifaði svo í dag undir tveggja ára samning um að þjálfa Þróttara sem leika í 1. deild karla á næstu leiktíð eftir að hafa fallið úr Pepsi-deildinni í sumar.

Finnbogi Hilmarsson formaður Þróttar staðfesti þessi tíðindi í ræðu sinni á lokahófi Þróttar sem nú stendur yfir.

Páll er með þessu að snúa aftur heim til síns gamla félags sem hann yfirgaf með miklum látum fyrir nokkrum árum er Atli Eðvaldsson var þjálfari og hann var sjálfur leikmaður.

Hann tekur við starfinu hjá Þrótti af Þorsteini Halldórssyni sem stýrði liðinu síðasta hluta mótsins eftir að Gunnari Odssyni var vikið úr starfi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.