Fotbolti.net
26.09.10 - 20:15
Hafliði Breiðfjörð

Kristján Guðmundsson tekur við Val af Gunnlaugi (Staðfest)

Kristján Guðmundsson er tekinn við Val.

Kristján Guðmundsson er tekinn við Val.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristján Guðmundsson er nýr þjálfari Vals en hann tekur við af Gunnlaugi Jónssyni sem hættir um leið. Gunnlaugi var tilkynnt í dag að hann myndi hætta með liðið og samið við Kristján um helgina.
Yfirlýsing frá Val
Stjórn knattspyrnudeildar Vals hefur komist að samkomulagi við Gunnlaug Jónssyni um starfslok hans sem þjálfara meistaraflokks karla frá og með 1. október næstkomandi.

Þá hefur stjórn knattspyrnudeildarinnar náð samkomulagi við Kristján Guðmundsson um hann taki við þjálfun meistaraflokks karla frá og með 1. janúar 2011 til þriggja ára.

Kristján hefur mikla reynslu sem þjálfari og hefur starfaði við þjálfun í 26 ár. Hann var síðast þjálfari HB frá Þórshöfn í Færeyjum en frá 2004 til 2009 þjálfaði hann meistarflokk Keflavíkur. Kristján hefur áður starfað við þjálfun hjá Val en hann þjálfaði yngri flokka félagsins 1995 til 1996 en fór þaðan til Malmö FF og starfaði við þjálfun yngir flokka þar, einnig hefur Kristján þjálfað meistaraflokka ÍR og Þórs Akureyri.Þá er Kristján varaformaður Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands.

Stjórn knattspyrnudeildar Vals þakkar Gunnlaugi vel unnin störf á liðnu ári og óskar honum velfarnaðar.

Heimild: Valur.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.