26.10.06 - 16:18
Hafliði Breiðfjörð
Hannah, Kristján Valdimarsson og Freyr til Fylkis (Staðfest)

David Hannah í leik með Grindavík í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Bjarni Már Svavarsson

Fylkismenn sendu frá sér fréttatilkynningu rétt í þessu þar sem staðfest var að David Hannah, Kristján Valdimarsson og Freyr Guðlaugsson eru gengnir í raðir félagsins.
Skotinn David Hannah sem er 33 ára gamall, og lék 14 leiki með Grindvíkingum á síðastliðnu keppnistímabili, er genginn í raðir Fylkis. David er geysilega reynslumikill leikmaður. Hann lék til að mynda yfir 200 leiki fyrir Dundee United og yfir 30 leiki með Glasgow Celtic á árunum 1991-2002 í skosku úrvalsdeildinni. Hann hefur einnig leikið með liðum eins og St. Johnstone, AEL Limassol, enska liðinu Bury og skosku liðunum Ross County og Brechin.
Hannah sagði við Fótbolta.net: ,,Ég er mjög, ánægður með að vera koma aftur til Íslands næstu tvö árin. Ég kem fyrsta febrúar og hef þá æfingar með nýjum liðsfélögum mínum og vonandi gengur vel á næsta tímabili. Kristján (Valdimarsson) sem lék með mér hjá Grindavík er að koma í Fylki og þá kannast ég við nokkra leikmenn síðan síðasta sumar."
Kristján Valdimarsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við Fylki. Kristján lék líkt og David Hannah með Grindavík í sumar en hefur nú ákveðið að ganga aftur til liðs við uppeldisfélag sitt Fylki.
Kristján er 22 ára gamall varnar- og miðjumaður. Hann hefur leikið 40 leiki í efstu deild og á að baki nokkurn fjölda leikja með yngri landsliðum Íslands og var í U-21 árs landsliðshópi Íslands á síðasta sumri.
Þá hefur ungur leikmaður frá Þór Akureyri, Freyr Guðlaugsson skrifað undir þriggja ára samning við Fylki. Freyr er 23 ára, fæddur í Reykjavík en ólst upp á Djúpavogi og æfði og spilaði með Neista fyrstu árin. Síðan lá leiðin í Hött á Egilstöðum þar sem hann lék sína fyrstu leiki með meistaraflokk, en hefur leikið með Þór Akureyri frá því árið 2002, og leikið nær alla leiki Þórs í deildarkeppni síðustu fjögur keppnistímabil.